Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Kirkjuveg

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og breytingu á deiliskipulagi íbúðars…

Íbúðar- og þjónustusvæði við Kirkjuveg og Karlsrauðatorg

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Kirkjuveg

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti þann 14.maí 2024 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér stækkun íbúðarsvæðis 302-ÍB um 0,5 ha á kostnað opins svæðis 308-O og stofnanasvæðis 304-S.

Aðalskipulagsuppdrátt má nálgast hér 

Samhliða er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Kirkjuveg skv. 41.gr skipulagslaga.

Tillagan felur m.a. í sér eftirfarandi:

  • Stækkun leikskólalóðar við Karlsrauðatorg 23 um rúmlega 1.200 m2.
  • Skilgreind er 8.000 m2 lóð utan um dvalarheimili við Kirkjuveg. Heimilað byggingarmagn verður 5.000 m2 á allt að þremur hæðum.
  • Skilgreind er ný tæplega 8.500 m2 lóð fyrir parhús á einni hæð við Kirkjuveg 25-27 fyrir íbúa 60 ára og eldri.
  • Skilgreind er ný gata sunnan við Karlsrauðatorg 19 og við hana tæplega 2.000 m2 lóð fyrir fjögurra íbúða raðhús á tveimur hæðum fyrir íbúa 60 ára og eldri.
  • Skilgreind er ný rúmlega 1.400 m2 lóð fyrir tíu íbúða fjölbýlishús á 2-3 hæðum fyrir íbúa 60 ára og eldri.

Deiliskipulagsuppdrátt ásamt greinargerð og skýringaruppdrætti má nálgast skjal 1, skjal 2, skjal 3

Skipulagsuppdrætti ásamt greinargerðum má jafnframt nálgast í afgreiðslu á 1.hæð í ráðhúsi Dalvíkur frá 24.janúar til 10.mars 2025. Tillagan mun einnig verða aðgengileg á heimasíðu Dalvíkurbyggðar og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is (mál nr. 454/2024 og 456/2024) á sama tíma.

Athugasemdum þar sem nafn, heimilisfang og kennitala sendanda kemur fram má skila á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til Framkvæmdasviðs, Ráðhúsi, 620 Dalvík eða í gegnum Skipulagsgátt til og með 10.mars 2025.

Dalvík, 24.janúar 2025

 

Skipulagsfulltrúi