Gott að eldast

Í nóvember sl var undirrritaður samningur þess efnis að Dalbær tekur yfir rekstur félagsþjónustu og heimahjúkrunar undir merkjum þróunarverkefnisins „Gott að eldast“. Þróunarverkefni þetta er hluti af aðgerðaráætlun á vegum Félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og Heilbrigðisráðuneytis um þjónustu við eldra fólk. Samþætting félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða í heimahúsum er einn liður í aðgerðaráætluninni og voru valin nokkur svæði á landinu til að taka þátt í þróun samþættrar heimaþjónustu. Lykilatriði samþættingarinnar var að reksturinn yrði á einni hendi og hér á okkar svæði varð niðurstaðan sú að samið var við Dalbæ um þennan rekstur.

Tilgangur og markmið verkefnisins eru fyrst og fremst að samþætta þá þjónustu og stuðning sem aldraðir eiga kost á í heimahúsum, einfalda boðleiðir, vinna að betri nýtingu mannauðs, endurskoða verkferla og vinnulag, vinna að aukinni nýtingu velferðatækni og ýta undir og styðja sjálfsbjargargetu, virkni og ábyrgð einstaklinganna.

Nýja samþætta heimaþjónustan tekur formlega til starfa 1. febrúar undir nafninu Heimastuðningur Dalvíkurbyggðar
Aðsetur Heimastuðnings er á Dalbæ, á norðurgangi neðri hæðar (skrifstofugangi) og síminn er 466-1379.
Stjórnendateymi Heimastuðnings er:
Guðrún Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri (gudrun@dalbaer.is)
Kristín Heiða Halldórsdóttir iðjuþjálfi og stjórnandi heimaendurhæfingar (kristin@dalbaer.is)
Ingunn Magnúsdóttir tengiráðgjafi (ingunn@dalbaer.is) Og með þeim starfar svo hópur starfsmanna sem ýmist koma úr félagsþjónustunni, HSN eða Dalbæ.

Markmið Heimastuðnings er að stuðla að auknum lífsgæðum eldri borgara Dalvíkurbyggðar, tryggja samfellu í þjónustu og einfaldar boðleiðir. Að geta veitt kvöld- og helgarþjónustu og hafa möguleika á næturþjónustu. Að nýta mannauðinn betur með aukinni teymisvinnu, samvinnu og endurskipulagi á verkferlum. Auka samstarf við dagdvölina á Dalbæ og vinna að því að rjúfa einangrun eldra fólks og viðhalda sjálfstæði þeirra. Að nýta velferðartækni til að auka sjálfstæði og öryggi. Einnig að þróa breyttar áherslur í stuðningsþjónustu, ýta undir virkni og sjálfsbjargargetu með aukinni áherslu á endurhæfingu og eflingu sjálfshjálpar og sjálfstæðis. Unnið verður að forvörnum með fræðslu, ráðgjöf og stuðning.

Við leggjum áherslu á að þetta er þróunarverkefni, það er ekki fullhannað eða niðurnjörvað frá fyrsta degi. Samvinna við notendur og fjölskyldur þeirra er mikilvæg og starfsfólk Heimastuðnings þarf tíma og tækifæri til að þróa og bæta þjónustu og stuðning.

Opnunartími/vinnutími starfsfólks Heimastuðnings verður virka daga kl 8-16 og 18-22 og um helgar kl 9-13 (og síðar einnig kl 18-22 um helgar).
Guðrún deildarstjóri verður með opinn viðtalstíma á skrifstofu sinni á Dalbæ á miðvikudögum kl 13-14:30.
Stjórnendateymi Heimastuðnings tekur við umsóknum og fyrirspurnum í síma og tölvupósti.

Heimastuðningur Dalvíkurbyggðar 466-1379