Vorhreinsunardagar í Dalvíkurbyggð.

Vorhreinsunardagar í Dalvíkurbyggð.

Árlegir vorhreinsunardagar í Dalvíkurbyggð fara fram að þessu sinni:

Á Dalvík verður hreinsunardagur laugardaginn 25. maí, þeir sem kjósa að plokka þennan dag meiga skilja ruslið eftir við grænu stauratunnurnar og starfsmenn Dalvíkurbyggðar safna því saman, Gámasvæðið verður opið til kl.16:00 þennan dag.

Á Árskógssandi verður hreinsunardagurinn fimmtudaginn 23. maí. Íbúar ætla að hittast á leiksvæði kl. 17:00. Gámur verður staðsettur á bílaplani við Sjávargötu.

Á Hauganesi verður hreinsunardagur fimmtudaginn 30. maí. Gámur verður staðsettur á bílaþvottaplani.

Við hvetjum alla til þess að taka þátt og taka til hendinni og hjálpast að við að gera bæinn okkar snyrtilegan.