Vorhreinsun í Dalvíkurbyggð 9. - 12. maí

Árviss vorhreinsun í Dalvíkurbyggð hefst núna föstudaginn 9. maí en þá taka allir höndum saman, bæjarbúar og bæjarstarfsmenn, um að hreinsa og fegra bæinn. Bæjaryfirvöld hvetja því íbúa Dalvíkurbyggðar til að hreinsa lóðir sínar. Starfsmenn bæjarins eru svo á ferðinni og fjarlægja garðúrgang sem fólk hefur sett utan við lóðarmörk sín. Einnig er bent á garðaúrgangsgáma á gámasvæðinu á Dalvík, við Hinriksmýri á Árskógssandi og við Aðalgötuna á Hauganesi.
Almennt sorp sem fólk safnar saman á opnum svæðum á að fara í poka og setja það á áberandi stað þar sem bæjarstarfsmenn fjarlægja það síðan.


Athugið:
- Garðaúrgang skal setja út við lóðamörk í pokum, greinaafklippur (langar greinar) skal binda í knippi.
- Óheimilt er að flytja lausan jarðveg út fyrir lóðamörk og verður slíkt fjarlægt á kostnað lóðarhafa.
- Ekki verður fjarlægt rusl af byggingarlóðum.
- Íbúar þurfa sjálfir að koma spilliefnum í endurvinnslustöð, enn fremur timbri, málum og öðru rusli.

Ekki er mögulegt að fjarlægja heil tré eða trjástofna.


Járn:
Brotajárn á að fara í járnagáma við gámasvæðið. Bændur eru hvattir til að fara með allt brotajárn að þjóðvegi þar sem það verður sótt.


Bifreiðar, bílflök og aðrir lausafjármunir:
Á sama tíma mun Heilbrigðiseftirlitið líma tilkynningu um að fjarlægja bifreiðar og lausafjármuni sem standa á víðavangi og í kjölfarið láta fjarlægja það á kostnað eigenda ef ekki verður brugðist við.