Veðurklúbburinn á Dalbæ kom saman til fundar þann 29. september 2009 til að spá fyrir um veður í októbermánuði.
Félagar voru sáttir við spá seinnihluta septembermánaðaar en ekki öllu leyti með fyrripartinn. Þeir töldu að það gæti orðið einhver leiðindi fyrst í október en að öðru leyti yrði hann allgóður. Nýtt tungl (sunnudagstungl) kviknar 18. október í aust-norðaustri (a.n.a.)
Eitt sérálit kom fram þess efnis að það yrði leiðindatíð fram yfir 4. október, en eftir það yrði mánuðurinn góður miðað við árstíma.
Með haustmánaðarkveðju,
Veðurklúbburinn á Dalbæ.