Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2022. Umsóknarfrestur er til kl. 13:00 miðvikudaginn 10. nóvember 2021.
Veittir eru styrkir í eftirfarandi þremur flokkum:
- Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
- Verkefnastyrkir á sviði menningar
- Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar
Í takt við sóknaráætlun landshlutans verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem snúa að umhverfismálum.
Viltu lesa nánar um uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra? https://www.ssne.is/.../soknaraaetlun-1/uppbyggingarsjodur
Á fimmtudaginn kl. 17:00-18:00 verður rafræn vinnustofa varðandi helstu atriði í ferli umsókna í Uppbyggingarsjóð
og færi gefið á að spyrja spurninga sem brenna á þeim sem eru að móta sín verkefni og skrifa umsóknir.
Vinnustofan stendur yfir í um eina klukkustund.
Best er að skrá þátttöku inn á facebook viðburðinn til að fá áminningu eða þá skrá sig í gegnum heimasíðu SSNE og fá áminningarpóst degi fyrir vinnustofuna.
Linkur á vinnustofuna:
https://fb.me/e/1QsM6d3eo