Að gefnu tilefni viljum við koma á framfæri gildandi reglum um heimsóknir á Dalbæ. Það hefur verið leyfilegt að hitta heimilisfólk utandyra að þvi tilskildu að haldin sé 2ja- metra fjarlægð. Því miður hefur orðið brestur þar á. Nú þegar snjórinn hopar og sólin skín eru gestakomum á stéttina að fjölga og erfiðara að hafa yfirsýn og stjórn. Því verðum við að herða reglur og biðjum fólk að sýna því skilning. Allt er þetta gert með velferð heimilisfólks í huga:
- Einungis er leyfð ein heimsókn í viku til hvers heimilismanns og fram til 4. maí verður hún aðeins utandyra.
- Halda skal a.m.k. 2-ja metra fjarlægð og forðast allar snertingar
Eftir 4. maí taka gildi tilslakanir á heimsóknarbanni en heimsóknir verða takmarkaðar og háðar skilyrðum. Í leiðbeiningum Almannavarna og sérfræðihóps um hjúkrunarheimilin er mælst til þess að takmarka fjölda heimsókna í hverri viku, að börn komi ekki í heimsókn og að aðeins nánasta aðstandanda verði leyft að koma inn á heimilið fyrstu tvær vikurnar frá því tilslakanir hefjast og lengur ef svo ber undir.
Frá 4. maí gildir því:
- Aðeins einn gestur (nánasti aðstandandi) má koma í heimsókn til íbúa á hverjum tíma.
- Gestir mega ekki koma nema að fengnu leyfi
- Gestir mega ekki staldra við í sameiginlegum rýmum heimilisins
- Virða ber 2-ja metra regluna og forðast beina snertingu við íbúa
- Gestum ber að þvo sér og spritta hendur og að sjálfsögðu er þeim óheimilt að koma heimsókn sem eru í sóttkví, einangrun eða með einkenni (hósta, kvef, hita, niðurgang, beinverki ofl.)
- Einungis ein heimsókn í viku fyrst um sinn
Vonir standa til að hægt verði að rýmka heimsóknarleyfi í júní en hins vegar gæti þurft að herða aftur reglurnar ef upp koma smit.
Þökkum skilning og hlýjar kveðjur,
Sumarkveðja frá Dalbæ.
Elísa Rán Ingvarsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri