Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í 467 m2 viðbyggingu leikskólans Krílakots ásamt breytingum á núverandi húsnæði.
Verktími er frá júní 2015 til ágúst 2016.
Helstu magntölur eru:
- Útgröftur 1200 m3
- Mótasmíði veggja 1100 m2
- Steinsteypa 250m3
- Málning veggja 1000 m2
- Dúkalögn 430 m2
- Múrhúðun utanhúss 200 m2
Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með 4. maí n.k.
Tilboð skulu berast á ofangreint netfang eða í lokuðu umslagi í þjónustuver Skrifstofa Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu Dalvík, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 26. maí 2015.
Tilboð verða opnuð sama dag kl. 14:00 í fundarsal Ráðhúss Dalvíkur 3. hæð,
í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.