Sumarstörf hjá Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar

Sumarstörf hjá Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar

 

Óskað er eftir umsóknum í starf  verkstjóra Vinnuskólans og í 6 störf flokkstjóra.

Verkstjóri Vinnuskólans.
  • Sér um daglegan rekstur, fylgir eftir vinnu og verkefnum.
  • Viðkomandi þarf helst að vera 25 ára eða eldri, þarf að hafa mikla hæfni í að                      stjórna og skipuleggja og góð mannleg samskipti eru æskileg.
Flokkstjórar.
  • Vinna með 5 -7 krakka í hóp, á aldrinum 14-16 ára.
  • Viðkomandi þarf að hafa þroska til að stjórna og vinna með unglingum.

Umsóknarfrestur er til 23. mars.

Nánari upplýsingar fást hjá Garðyrkjustjóra í síma 898 3490.

Umsóknareyðublöð má nálgast á Bæjarskrifstofunni og á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvik.is, undir tækni- og umhverfisdeild.

Þeim skal skila inn á Bæjarskrifstofunni, Ráðhúsinu.

 

Jón Arnar Sverrisson.

Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar og umsjónarmaður Vinnuskólans.