Sumarstörf hjá Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar.
Óskað er eftir umsóknum í starf yfirflokkstjóra og í 7 störf flokkstjóra.
Yfirflokkstjóri.
- Vinnur með Garðyrkjustjóra og aðstoðar hann við rekstur á Vinnuskólanum.
- Hæfni í að stjórna og skipuleggja og góð mannleg samskipti æskileg.
- Þarf helst að vera 20 ára eða eldri.
Flokkstjórar.
- Vinna með 7-10 krakka í hóp, á aldrinum 14-16 ára.
- Viðkomandi þarf að hafa þroska til að stjórna og vinna með unglingum.
Umsóknarfrestur er til 18 mars.
Nánari upplýsingar fást hjá Garðyrkjustjóra í síma 898 3490.
Umsóknareyðublöð má nálgast á Bæjarskrifstofunni og á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvik.is, undir tækni og umhverfisdeild.
Þeim skal skila inn á Bæjarskrifstofunni, Ráðhúsinu.
Jón Arnar Sverrisson.
Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar og umsjónarmaður Vinnuskólans.