Hitaveita Dalvíkur leggur árlega fjárhæð í sjóð til skógræktarmála.
Einstaklingum og félögum í Dalvíkurbyggð gefst kostur á að sækja um styrk til plöntukaupa úr þessum sjóði.
Í umsókninni skal eftirfarandi koma fram:
- Tilgreina skal staðsetningu, stærð og lýsingu á landi því sem planta skal í.
- Hver er tilgangur verkefnisins.
- Hvaða tegundir er sótt um og hve mikið magn.
- Hvernig og hvenær mun útplöntun fara fram.
Umsóknum skal skila til Þjónustuvers Dalvíkurbyggðar, merktum Garðyrkjustjóra fyrir 12. apríl.
Frekari upplýsingar gefur Garðyrkjustjóri í síma 898 3490
Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar.