Hitaveita Dalvíkur leggur árlega fjárhæð í sjóð til skógræktarmála. Einstaklingum og félögum í Dalvíkurbyggð gefst kostur á að sækja um styrk til plöntukaupa úr þessum sjóði.
Í umsókninni skal eftirfarandi koma fram:
- Stærð og lýsing á landi eða svæði sem planta skal í.
- Tilgangur útplöntunar.
- Fjöldi plantna sem sótt er um.
- Trjátegundir.
- Helsta ástæða umsóknar.
- Hvernig standa skal að útplöntum.
Umsóknum skal skila til Dalvíkurbyggðar, merktum Garðyrkjustjóra fyrir 7. apríl.
Frekari upplýsingar gefur Garðyrkjustjóri í síma 898 3490
Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar.