Stóri plokkdagurinn verður haldinn hátíðlegur fjórða árið í röð laugardaginn 24. apríl næstkomandi. Framundan er mikið verkefni í allan vetur og næsta sumar við það að losa umhverfið við einnota grímur og hanska sem fylgt hafa Covid lífinu. Þetta er viðbót við allt iðnaðar- og neysluplastið sem er þarna úti. Við þurfum öll að leggjast á eitt og ná frábærum árangri.
Allstaðar um landið eru öflugustu plokkararnir okkar þó löngu byrjaðir og hægt er að fylgjast með afrekum þeirra í þágu umhverfisins og samfélagsins á facebook síðu Plokk Á Íslandi
Plokk á Íslandi hvetur alla landsmenn til að láta gott af sér leiða og um leið fylgja fyrirmælum því plokkið er ráðlagður dagskammtur af hreyfingu um leið og auðvelt er að fylgja reglum sóttvarnarlæknis.
PLOKKUM Í SAMKOMUBANNI
- Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
- Klæðum okkur eftir veðri
- Notum hanska, plokktangir og ruslapoka
- Hver á sínum hraða og tíma
- Frábært fyrir umhverfið
- Öðrum góð fyrirmynd