Starfsmenn Hafna Dalvíkurbyggðar.

Starfsmenn Hafna Dalvíkurbyggðar.

Ákveðið var á fundi byggðaráðs þann 13. júní sl. að auglýsa eftir Hafnastjóra fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar. Sú auglýsing var framlengd en bar ekki árangur. Því var ákveðið að ráða tímabundið í starf Yfirhafnavarðar.
Breytingar hafa því átt sér stað í starfsmannahaldi á höfnum Dalvíkurbyggðar þetta haustið. Þann 10. september sl. var Leifur Kristinn Harðarson ráðinn tímabundið sem Hafnavörður og þann 1. október sl. var Björgvin Páll Hauksson, Hafnavörður, ráðinn tímabundið sem Yfirhafnavörður.

Þrjú stöðugildi eru við hafnirnar; Yfirhafnavörður og tveir Hafnaverðir.

Við hlökkum til samstarfsins.