Starfsfólk við íbúðakjarna og skammtímavistun:

Starfsfólk við íbúðakjarna og skammtímavistun:

Starfsfólk við íbúðakjarna og skammtímavistun:

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir lausnamiðuðum, metnaðarfullum og drífandi starfsmanni við íbúðakjarna og skammtímavistun til að sinna íbúum í sjálfstæðri búsetu/skammtímavistun. Um er að ræða úrræði fyrir fatlaða einstaklinga með fjölþættan vanda.
Unnið er á dag-, kvöld-, nætur og helgarvöktum. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Um ótímabundin störf er að ræða og er starfshlutfall allt að 94%.
Félagsþjónustan sér um og leggur metnað í að veita notendum fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að styðja við sjálfstæða búsetu og skapa notendum aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi á heimili sínu þrátt fyrir skerðingu á færni. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf eða annarri hugmyndafræði sem mætir þörfum notenda og ákveðin er af félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar.

Helstu verkefni:

  • Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta við íbúa með fjölþættan vanda og stuðningsþörf, sem miðar að því að leiðbeina og aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf varðandi húshald eftir því sem þörf krefur.
  • Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, innan og utan heimilis.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa og notendur Skammtímavistunar.
  • Jákvæð og uppbyggileg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur og samstarfsfólk.
  • Leiðbeina og aðstoða við atvinnu.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Bílpróf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.

Umsóknarfrestur er til og með sunnudagsins 17.nóvember 2024

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar.
Sótt er um starfið í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda.

Ef umsækjendur uppfylla ekki hæfniskröfur áskilur stjórnandi sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um starfið gefa; Þórhalla Franklín Karlsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, netfangið: tota@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900 og Hildur Birna Jónsdóttir forstöðumaður íbúðakjarna og skammtímavistunnar á netfangið hildurbj@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4927.
Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.