Starfsfólk vantar til starfa hjá Félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar
- Starfsfólk vantar til að sinna liðveislu í Dalvíkurbyggð.
- Starfið er hlutastarf og hægt að sinna því samhliða öðru starfi.
- Markmið með liðveislu er að efla viðkomandi til sjálfsbjargar, veita honum persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar- og félagslífs.
Um er að ræða mjög spennandi starf sem reynir á hlýlegt viðmót starfsmanns, umhyggju fyrir þeim einstaklingum er starfsmenn sinna, ábyrgð og frumkvæði.
Laun greiðast samkvæmt launakjörum Kjalar.
Frekari upplýsingar veita
Arnheiður Hallgrímsdóttir, starfsmaður félagsþjónstu Dalvíkurbyggðar í síma 460-4912
og Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri í síma 460 4910