Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar óskar eftir að ráða starfsmenn við íbúðakjarna og skammtímavistun í 30-50% stöðuhlutfall til að sinna íbúum í sjálfstæðri búsetu/skammtímavistun. Vinnutími er breytilegur og umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.
Einnig vantar afleysingu í 70% starfshlutfall vegna fæðingarorlofs í eitt ár frá og með 1.nóvember 2021 til 31.október 2022.
Helstu verkefni fyrir þjónustu við fatlaða einstaklinga eru:
- Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta við íbúa, sem miðar að því að leiðbeina og aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf varðandi húshald eftir því sem þörf krefur.
- Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, innan og utan heimilis
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa og notendur skammtímavistunar
- Jákvæð og uppbyggileg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur og samstarfsfólk
- Leiðbeina og aðstoða við atvinnu
Hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.
Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.
Við ráðningu er jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar.
Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda. Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2021.
Upplýsingar gefur Þórhalla Franklín Karlsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, í netfangið: tota@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4912
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/login.aspx