Skíðafélag Dalvíkur óskar eftir að ráða starfsmann til að hafa umsjón með skíðaskála félagsins, Brekkuseli.
Ráðningartími er frá 1. janúar -15. apríl 2016.
Starfssvið:
- Dagleg umsjón með Brekkuseli
- Ábyrgð á miðasölukerfi svæðisins
- Lyftuvarsla
- Móttaka hópa í Brekkuseli
- Innkaup á vörum í sjoppu og til þrifa
- Önnur tilfallandi störf á skíðasvæðinu
Hæfniskröfur:
- Góðir samskiptahæfileikar, sér í lagi við börn og unglinga
- Reglusemi og stundvísi
- Sveigjanleiki varðandi vinnutíma
- Almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Kári Ellertsson, framkvæmdastjóri Skíðafélags Dalvíkur, í síma 891 6299 eða karie@simnet.is og skal umsóknum skilað á sama netfang.
Umsóknarfrestur er til 20. október 2015.