Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laust hluta starf við félagsmiðstöðina Týr
Starfstími er frá byrjun september – 31. maí.
Hæfniskröfur:
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Metnaðarfullur í starfi og hæfni til að vinna í hóp
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og þörf til að ná árangri
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum er kostur
- Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst nk.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á minni Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar.