Við erum að leita að frábærum umsjónarkennurum, frá 1. ágúst 2014, í okkar öfluga starfsmannahóp í Dalvíkurskóla. Okkar vantar kennara bæði á yngra og eldra stig.
Gildi Dalvíkurskóla eru: Þekking og færni, virðing og vellíðan
Dalvíkurskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar, við erum Grænfánaskóli, erum að þróa kennslu í aldursblönduðum hópum og leggjum mikla áherslu á skólaþróun.
Menntunarkröfur:
- Réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Framhaldsmenntun er kostur.
Hæfniskröfur:
- Mikill áhugi á að leita nýrra leiða í skólastarfi.
- Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir
- Þekking á kennslu- og uppeldisfræði.
- Áhugi á kennslu og vinnu með börnum.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Gleði og umhyggja.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Hreint sakarvottorð.
Umsóknarfrestur er til 8. april nk.
Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli
Upplýsingar gefur Björn Gunnlaugsson skólastjóri í síma 460-4983 eða bjorn@dalvikurbyggd.is .
Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið bjorn@dalvikurbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.