Viltu taka þátt í að móta og efla gott fagstarf í frístundahúsinu Víkurröst í Dalvíkurbyggð? Sveitarfélagið óskar
eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi aðila í starfi forstöðumanns frístundahússins Víkurrastar. Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2012.
Starfssvið:
• Ábyrgð á öllu frístundastarfi í Víkurröst
• Forvarnarstarf
• Skipulagning viðburða
• Aðstoð og stuðningur við ungmenni sveitarfélagsins
• Mikil samskipti við samstarfsaðila, svo sem grunnskóla í Dalvíkurbyggð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Jákvæðni, glaðlegt viðmót og góð samskiptahæfni
- Reynsla og áhugi á starfi með börnum og ungmennum
- Frumkvæði og þörf til að ná árangri
- Góð tölvuþekking og færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frekari upplýsingar gefur íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og skulu ferilskrár og kynningarbréf send rafrænt á
arni@dalvikurbyggd.is og verður móttaka þeirra staðfest.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.