Á 17. júní gaf slysavarnadeildin á Dalvík íþróttamiðstöðinni armkúta, núðlur og leikföng til að nota í sundlauginni. Allt er þetta liður í slysavörnum. Mikilvægt er að öll börn séu synd, kunni að kafa og geti bjargað sér í vatni. Ekki síður er sundkunnátta mikilvæg þegar börn búa nærri sjónum.
Þessar gjafir munu nýtast íþróttamiðstöðinni vel og er slysavarnardeildinni færðar þakkir fyrir góða gjöf og óeigingjarnt starf í þágu slysavarna á staðnum.
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Myndin var tekin við afhendingu á búnaðinum á 17. júní. Myndin er fengin af heimasíðu Slysavarnardeildarinnar:
http://slysavarnadeildindalvik.xnet.is/