Föstudaginn 26. júní undirrituðu Svanfríður Jónasdóttir f.h. Dalvíkurbyggðar og Arna Jakobína Björnsdóttir f.h. Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar, SÍMEY, samning um rekstur námsversins á Dalvík.
Markmið samningsins eru:
• að vinna markvisst að uppbyggingu námsversins á Dalvík sem miðstöðvar símenntunar við utanverðan Eyjafjörð.
• að efla símenntun og auka framboð námskeiða á starfsvæði Símey, með áherslu á Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð
• að bjóða uppá aðstöðu til fjarnáms fyrir einstaklinga og hópa
• að bjóða uppá námsaðstöðu fyrir framhalds- og háskólanema
• að vinna með fyrirtækjum að aukinni menntun og fagþekkingu starfsmanna
• að auka þjónustu námsráðgjafa við einstaklinga og fyrirtæki
• að boðið sé upp á aðstöðu til að taka fjarpróf við námsverið
Ráðinn verður starfsmaður hjá SÍMEY í 50% starf við námsverið á Dalvík frá 1. ágúst 2009, en gert er ráð fyrir að það starfshlutfall geti vaxið vegna nýrra verkefna frá SÍMEY og/eða aukinnar starfsemi í námsverinu. Námsverið er í Gamla skóla við Skíðabraut á Dalvík. Dalvíkurbyggð rekur húsnæðið og leggur til aðstöðu fyrir starfsmann.
Nokkurra ára reynsla er komin á rekstur námsvers á Dalvík og binda samningaðilar vonir við að þetta samkomulag verði til að efla það starf enn frekar og þar með símenntun við utanverðan Eyjafjörð, ásamt því að leiða til aukinnar fjölbreytni í framboði á námskeiðum á vegum SÍMEY.