Ráðning upplýsingafulltrúa

Margrét Víkingsdóttir hefur verið ráðin í starf upplýsingafulltrúa sem auglýst var laust til umsóknar í desember 2007 og  mun hún hefja störf í haust. Freyr Antonsson hefur verið ráðinn tímabundið í starf upplýsingafulltrúa og er hann þegar tekinn til starfa. Alls bárust 11 umsóknir um starf upplýsingafulltrúa Dalvíkurbyggðar.

Margrét Víkingsdóttir gengdi starfi upplýsingafulltrúa frá árinu 2004-2006 og hefur undanfarið ár starfað sem verkefnastjóri hjá Ferðamálasetri Íslands á Akureyri. Freyr Antonsson mun klára nám við Viðskipta- og Raunvísindadeild Háskólans á Akureyri í vor.