Örsögusamkeppni MENOR og Tímarits Máls og menningar
Menningarsamtök Norðlendinga, MENOR, efnir til samkeppni um örsögur í vetur í samstarfi við Tímarit Máls og menningar. Örsögur eru nefndar örstuttar smásögur, oft með ljóðrænu ívafi. Þátttaka er heimil fólki á öllum aldri og alls staðar á landinu. Skilafrestur er til 1. maí næstkomandi. Þriggja manna dómnefnd velur þá þrjár bestu sögurnar sem hljóta vegleg bókaverðlaun.
Sögurnar á að senda undir dulnefni til: MENOR / Pósthólf 384 / 602 Akureyri merktar "Örsögukeppni MENOR og Tímarits Máls og menningar 2005". Í lokuðu umslagi með sögunni skal fylgja nafn höfundar, heimilisfang og símanúmer. Umslagið skal merkt með dulnefni höfundar. Aðeins verða opnuð umslög verðlaunahöfunda. Nánari upplýsingar má nálgast á www.menor.is
MENOR stóð í fyrsta skipti fyrir keppni á sviði ritaðs máls veturinn 1986-87 þegar félagið og RÚVAK efndu til samkeppni um ljóð og smásögur. Valin voru fimm ljóð og jafnmargar smásögur til flutnings í svæðisútvarpinu. Árið 1989 hófst samstarf milli MENOR og dagblaðsins Dags á Akureyri um ljóða- og smásagnasamkeppni, og hefur slík keppni verið árviss viðburður síðan. Úrval þessara ljóða og sagna var gefið út á bók á 20 ára afmæli MENOR árið 2002. MENOR hefur líka verið í samstarfi við DV og tímaritið Heima er best, og samkeppni um ritun einþáttunga fór fram árin 1998-2000 í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Voru verðlaunaþættirnir settir á svið á Akureyri árið 2003.