Nýr byggingarfulltrúi Dalvíkurbyggðar.

Nýr byggingarfulltrúi Dalvíkurbyggðar.

Þann 1.janúar 2025 tók Steinmar Heiðar Rögnvaldsson við starfi byggingarfulltrúa í Dalvíkurbyggð. Steinmar sinnir jafnframt starfi byggingarfulltrúans á Akureyri.
Starfsstöð byggingarfulltrúa er í ráðhúsi Akureyrar en viðvera er auk þess í Dalvíkurbyggð þegar starfið krefst þess.
Byggingarfulltrúi Dalvíkurbyggðar vinnur samkvæmt samþykktum og reglum Dalvíkurbyggðar, þ.m.t. Viðauka um embættisafgreiðslur byggingarfulltrúa í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar.
Byggingarfulltrúi annast þau verkefni sem tilheyra starfi byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum og viðkomandi reglugerðum. Byggingarfulltrúi afgreiðir byggingarleyfisumsóknir í Dalvíkurbyggð á reglubundnum afgreiðslufundum. Fundargerðir afgreiðslufunda eru birtar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
Starfsfólk byggingarfulltrúans á Akureyri sér m.a. um skráningu teikninga og skráningu í Mannvirkjaskrá HMS, tilkynningar varðandi afgreiðslu erinda og þess háttar.
Sveitarfélagið Dalvíkurbyggð er leyfisveitandi þeirra byggingarleyfa sem byggingarfulltrúi afgreiðir.

Hægt er að hafa samband við byggingarfulltrúa í netfangið steinmar@dalvikurbyggd.is eða í gegnum þjónustuver í síma 460-4900.