Ný leikskólalóð opnuð á Krílakoti.
Mikið húllumhæ var á Krílakoti í gær þegar ný lóð var formlega tekin í notkun.
Við breytinguna var lóð Krílakots stækkuð til austurs og sérstakt ungbarnasvæði skilgreint næst skólahúsinu og það aðgreint með lágri timburgirðingu.
Við hönnun á nýrri lóð var mikil áhersla lögð á að halda í landslagseinkenni svæðisins, en svæðið einkennist af hólum og lautum.
15 ný leiktæki voru sett upp, þar af tvær klifurgrindur með rennibrautum, ungbarnarólur, kofar, trampólín og stór timburbátur. Tveir sandkassar eru á svæðinu og lítill fótboltavöllur með gervigrasi. Malbikaður stígur liggur um svæðið og lýsing hefur verið bætt til muna.
Verkefnið gekk mjög vel, allar tímasetningar stóðust, og var samvinna og samráð verktaka við verkkaupa og starfsfólk Krílakots til fyrirmyndar.
Næsta vor á að leggja lokahönd á verkið, en þá verða plöntur gróðursettar og sérstakt tartan-undirlag sett á svæðið umhverfis timburbátinn.
Leikskólalóðin var hönnuð af teiknistofunni Landmótun og verktakinn sem vann verkið var Steypustöðin Dalvík.
Lóðin er virkilega glæsileg eftir þessar breytingar og við hvetjum íbúa til þess að lýta við og skoða þessa glæsilegur leikskólalóð.