Nú gefst fólki á norðurlandi og vestfjörðum tækifæri til að stunda nám í menntasstoðum með dreifinámsfyrirkomulagi eða fjarfundabúnaði. Dreifinámið felst í því að enda þótt kennslan fari fram á Akureyri, geta þeir sem búa annars staðar sótt námið í gegnum fjarfundabúnað í námsverum.
Menntastoðir hefjast 5. nóvember 2010 og lýkur í maí / júní 2011. Námið er ætlað 20 ára og eldri, er á framhaldsskólastigi og gefur um 50 einingar inn í Háskólabrú Keilis.
Námið er skipulagt í samvinnu við símenntunarstöðvar SÍMEY, Farskólann á Norðurlandi vestra, Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Þekkingarnet Þingeyinga.
Frekari upplýsingar má nálgast hér. og í síma 460 5720. Skráning fer fram í sama símanúmeri, en henni lýkur 2. nóvember 2010.