Frá Menningarsjóði
Sparisjóðs Svarfdæla
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla. Samkvæmt 2. grein skipulagsskrár sjóðsins er tilgangur hans að veita styrki til hvers konar menningarmála á starfssvæði Sparisjóðs Svarfdæla, en það er í Dalvíkurbyggð og Hrísey.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar 2008. Umsóknum skal skila til stjórnar sjóðsins sem veitir nánari upplýsingar. Stjórnina skipa:
Björn Daníelsson, Laugabrekku, Svarfaðardal (bubbidan@simnet.is), formaður.
Dóróþea Reimarsdóttir, Steintúni 3, 620 Dalvík (dorotea@simnet.is).
Kristrún Sigurðardóttir, Ásholti 1, Hauganesi ( kristrun@dalvik.is).
Umsóknareyðublöð fást hjá ofanrituðum, á afgreiðslustöðum Sparisjóðsins og á heimasíðu hans http://www.spsv.is/.
Styrkþegar ársins 2007 eru minntir á að skilafrestur greinargerða rennur út 1. febrúar n.k..
Stjórn Menningarsjóðs Sparisjóðs Svarfdæla