Menningarráð Eyþings, umsóknarfrestur til 16. feb.

Nú líður að því að umsóknarfrestur um verkefnastyrki til menningarstarfs renni út. Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar.

Næstu tvö ár mun menningarráðið leggja sérstaka áherslu á samstarf og verkefni sem draga fram sérstöðu svæðisins. Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2009 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

· Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðalaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja saman Norðausturland
· Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna
· Verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga. Verkefnin geta tengst tónlist, danslist, myndlist, bókmenntum og fl.
· Verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista
· Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista

Menningarráð vekur athygli á því að styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta sótt um vegna ársins 2009. Verkefnum sem hljóta styrki að þessu sinni þarf að vera lokið fyrir árslok 2009.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna á http://www.eything.is/menningarrad.php