30. nóvember mun Magnús Stefánsson forvarnafulltrúi koma og fræða börn Dalvíkurskóla um hættur áfengis og fíkniefna. Fræðsla hans er rótgróin og hentar afar vel fyrir unglinga. Magnús mun fara inn í 8. - 10.bekk um morguninn en um kvöldið munum við halda foreldrafund í Vikurröst. Þar mun Magnús fræða þau sem eldri eru um hætturnar sem þessu fylgja og hvernig foreldrar geti nálgast börnin sín. Hvetjum við alla til að mæta og taka þátt í forvarnastarfi sveitafélagsins.
Einnig mun Maggi okkar kynna ferð á Samféshátíðina sem er haldin í mars á næsta ári. Félagsmiðstöðin fær takmarkaða miða og er mikilvægt að foreldrar þeirra barna sem vilja fara á hátíðina mæti á Marita-fræðsluna og fái kynningarbréf með upplýsingum.