Listaselið í Sigtúni:
Laust húsnæði til leigu
Laust er til leigu eitt herbergi á efri hæð í Listaselinu í Sigtúni við Grundargötu 1 á Dalvík.
Herbergið er um 20 fm2 að stærð.
Nánari upplýsingar veitir húsnæðisfulltrúi í síma 460-4921 eða í tölvupósti ingvark@dalvik.is
Umsóknir skulu berast þjónustuveri Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur fyrir 23. mars n.k.
Úthlutunar- og umgengnisreglur sem og gjaldskrá fyrir Listaselið er að finna á www.dalvik.is. Hægt er einnig að nálgast reglurnar og gjaldskrána í þjónustuverinu.
Íþrótta-, æskulýðs- og menningarráð Dalvíkurbyggðar sér um úthlutun leiguhúsnæðis, þ.e. fjallar um umsóknir og afgreiðir.
F.h. íþrótta-,æskulýðs- og menningarráðs,
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Fjármála- og stjórnsýslustjóri