Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir deildastjóra í 100% starf frá og með 11. ágúst 2020
Hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari
- Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra
- Góð íslenskukunnáttu æskileg
Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is umsókn skal fylgja ferilskrá og nöfn umsagnaraðila.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.
Greitt er samkvæmt kjarasamningi FL
Umsóknafrestur er til 29. maí 2020
Ef umsækjendur uppfylla ekki kröfurnar hér að ofan áskilur aðstoðarleikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Upplýsingar veitir: Ágústa Kristín Bjarnadóttir aðstoðarleikskólastjóri Krílakots í síma 460-4958 eða á netfangið agusta@dalvikurbyggd.is
Á Krílakoti eru börn á aldrinum 9 mánaða - 6 ára. Deildirnar eru fimm og heita Skýjaborg, Sólkot, Mánakot, Kátakot og Hólakot. Haustið 2010 tók Krílakot sín fyrstu skref í átt að innleiðingu Uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga sem er hugmyndafræði sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sig á þörfum sínum. Aðferðin er kennd við Diane Gossen frá Kanada. Haustið 2018 var farið að vinna með Lubbi finnur málbein sem er námstæki til að læra íslensku málhljóðin. Einnig höfum við flaggað Grænfána í ein 4 skipti. Leikskólinn Krílakot hefur sett sér það markmið að efla útiveru barnanna með útikennslu. Verkefnin fara eftir aldri og þroska barnanna og koma inn á öll námsvið. Í Krílakoti hafa einnig verið unnin fjölmörg þróunarverkefni og má þar nefna verkefni tengd lestri, stærðfræði og fjölmenningu.
Hægt er að kynna sér meira um leikskólann á heimasíður Krílakots https://www.dalvikurbyggd.is/krilakot