Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir aðstoðarmatráði í 81,5% starf. Um er að ræða tímabundna ráðningu til áramóta og þarf viðkomandi að hefja störf sem fyrst. Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.
Leikskólinn Krílakot er 5 deilda leikskóli á Dalvík. Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnur eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla og stærðfræði.
Gildi Krílakots eru Gleði – Sköpun – Þor.
Hægt er að kynna sér starf Krílakots hér https://www.dalvikurbyggd.is/krilakot
Helstu verkefni:
- Aðstoðar við undirbúning, matreiðslu og frágang matvæla í eldhúsi og skammta mat á vagna.
- Útbýr og matreiðir sérfæði fyrir nemendur og kennara sem á því þurfa að halda.
- Sér um gerð matseðla samkvæmt manneldismarkmiðum fyrir hvern mánuð. skólaársins undir stjórn matráðs.
- Frágangur og þrif auk annarra tilfallandi verkefna.
- Önnur verkefni sem aðstoðarmatráði er falið af leikskólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Matartæknir og/eða þekking og reynsla af matreiðslu og störfum í mötuneyti.
- Jákvæðni og sveigjanleiki.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.
Sótt er um starfið í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning.
Umsóknafrestur er til 20. september 2023.
Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og kröfur áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir: Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið gudrunhj@dalvikurbyggd.is