Leikskólinn Kátakot, sem er nýlegur leikskóli fyrir fjögra og fimm ára börn, auglýsir hér með lausar stöður aðstoðarleikskólastjóra og leikskólakennara. Umsóknarfrestur er til 22. janúar 2011.
Aðstoðarleikskólastjóri
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og geta til að vinna sjálfstætt
- Góður leiðtogi og hvetur fólk til góðra verka
- Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
- Hugmyndaríkur og sveigjanlegur
- Tilbúin/n að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í nýjum leikskóla
Einnig vantar okkur leikskólakennara, sem eru að auki:
- Jákvæðir og sveigjanlegir
- Hæfir í mannlegum samskiptum
- Sýna frumkvæði í starfi og geta unnið sjálfstætt
- Áhugasamir um fræðslu barna og velferð þeirra
Kátakot er leikskóli fyrir 4 – 5 ára börn. Helstu áherslur leikskólans eru hreyfing, hollt mataræði, útikennsla, leikskólalæsi,stærðfræði, myndsköpun, tónlist og dans. Leikskólinn er í góðu samstarfi við Grunnskóla Dalvíkurbyggðar. Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á www.dalvik.is/katakot
Upplýsingar veitir Gísli Bjarnason í síma 4604983/8631329. Umsókn um ferilsskrá skal senda á netfangið gisli@dalvikurskoli.is . Móttaka umsókna verður staðfest.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.