Umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laus til umsóknar störf sumarstarfsmanna á eigna- og framkvæmdadeild. Starfsmenn starfa undir deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar.
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl
Starfstími er frá 1. maí til 30. september 2020 (eða eftir samkomulagi)
Hæfniskröfur
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Samskipta- og skipulagshæfni
- Góður kostur er að hafa bílpróf og dráttarvélapróf (minna vinnuvélanámskeið).
Greitt er samkvæmt kjarasamningi Kjalar og Sambands ísl. sveitarfélaga.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/login.aspx
Umsóknum um starfið skal fylgja ferilsskrá.
Allar nánari upplýsingar veitir Steinþór Björnsson, deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar, í tölvupósti á netfangið steinthor@dalvikurbyggd.is