Árskógarskóli er leik- og grunnskóli sem tók til starfa 1. ágúst 2012. Í skólanum eru 40 börn frá 9 mánaða aldri til og með miðstigi grunnskóla. Hér starfar fjölbreyttur hópur í 9 stöðugildum. Við vinnum í aldursblönduðum hópum þvert á skólastig og nýtum umhverfi skólans til leiks og náms. Skólinn er Grænfánaskóli og vinnur eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar. Árskógarskóli er staðsettur við þjóðveginn, í Árskógi, 12 km frá Dalvík og 34 km frá Akureyri.
Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli/
Starfssvið:
- Að veita skólanum faglega forystu og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu Dalvíkurbyggðar, Aðalnámskrá leik– og grunnskóla og lög um leik– og grunnskóla
- Að stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans
- Að bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu í leik- og/ eða grunnskólum skilyrði
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- og menntunarfræða er kostur
- Þekking á áætlanagerð, fjármálastjórnun og stefnumótunarvinnu er kostur
- Reynsla á sviði stjórnunar og faglegrar forystu menntastofnana er kostur
- Frumkvæði, leiðtogahæfni og góðir skipulagshæfileikar
- Framúrskarandi færni í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta og færni til að miðla upplýsingum
Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn í skólamálum og er skapandi og metnaðarfullur. Staðan er laus frá 1. ágúst 2019. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsókn þarf að fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði skólamála og annað er málið varðar (kynningarbréf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið.
Dalvíkurbyggð er 1900 manna sveitarfélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og lærdómssamfélag og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar eru með því besta sem gerist hér á landi, jafnt sumar sem vetur. Dalvíkurbyggð er heilsueflandi samfélag. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní nk.
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar, netfang gisli@dalvikurbyggd.is eða í símum 4604916 og 8631329.
Umsókn ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi skal senda á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is.