Íþróttamiðstöðin á Dalvík auglýsir leikjanámskeið í sundi í Sundlauginni á Dalvík

Íþróttamiðstöðin á Dalvík auglýsir leikjanámskeið í sundi í Sundlauginni á Dalvík

Íþróttamiðstöðin á Dalvík auglýsir leikjanámskeið í sundi í Sundlauginni á Dalvík
vorið 2024
Fyrir börn sex ára (fædd 2017) frá 01. júlí – til og með 5. júlí (alls 5 skipti)
Hver hópur er 50 mínútur í lauginni í senn. Hefst kl. 10:00. Ath. að aðeins 12 börn
komast í hópinn. Námskeiðsgjald er kr. 5.000.- Skráning og greiðsla fer fram í
gegnum Sportabler hér.

Mikilvægt er að börnin séu mætt 10 mínútum fyrir tíma. Kennari er Helena
Frímannsdóttir íþróttakennari. Til aðstoðar er Elvý Inga Emilsdóttir.
Kennslan fer að miklu leiti fram í leikjaformi. Aðaláherslan er að börnin aðlagist
vatninu og að þau séu óhrædd við að hreyfa sig á sem fjölbreyttastan hátt í því.
Reynt er eftir bestu getu að koma til móts við þarfir allra barna, en ekki má gleyma
því að aldrei eru grunnatriðin of oft æfð. Foreldrum er velkomið að koma og
fylgjast með sundtímum. En munið að hluti af því að efla sjálfstæði barnanna er að
gefa þeim færi á að njóta sín óstudd og einbeita sér að fullu að leiðbeiningum
kennara.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu – og menningarsviðs
á gisli@dalvikurbyggd.is