Markmið þróunarsjóðsins er að styrkja þróun verkefna og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka arðsemi fyrirtækja. Samtals verða veittir styrkir úr sjóðnum að upphæð 35 milljónir kr. Annars vegar verður stutt við verkefni fyrirtækja sem lengt geta ferðamannatímann á tilteknum svæðum og hins vegar við samstarfsverkefni fyrirtækja sem vilja sameiginlega þróa þjónustu sem haft getur sömu áhrif víðar um landið. Í umsókn þurfa að koma fram skýrar hugmyndir um þá þjónustu og upplifun sem skila eiga í senn aukinni atvinnu og varanlegum verðmætum. Verkefnin verða að koma til framkvæmda innan
þriggja ára frá því að styrkur er veittur.
Nánari upplýsingar á http://www.idnadarraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3381