Innheimtubréf

Nýlega skipti Dalvíkurbyggð um viðskiptabanka þegar Sparisjóður Norðurlands sameinaðist Landsbanka Íslands,  en í kjölfar þess samruna ákvað byggðaráð Dalvíkurbyggðar að færa viðskipti sveitarfélagsins til Landsbankans.

Við skiptin komu upp vandamál með innheimtubréf en tæknileg mistök urðu til þess að innheimtubréf fóru út vegna krafna sem þegar var búið að greiða.

Við viljum biðja þá viðskiptavini sem hafa orðið fyrir þessu forláts og vonum að þetta komist í lag sem fyrst.