Heimsókna - Tengja
Húsabakka 14. apríl 2005
Ágætu foreldrar og forráðamenn nemenda í Húsabakkaskóla,
hluti af vinnu við sameiningu Húsabakkaskóla og Dalvíkurskóla eru gagnkvæmar heimsóknir nemenda í skólanna. Markmið heimsóknanna eru:
- Að nemendur skólanna kynnist mismunandi skólaaðstæðum til að eyða fordómum og auka gagnkvæma virðingu fyrir því sem börnunum er kært í umhverfi sínu.
- Að nemendur skólanna kynnist væntanlegum bekkjarfélögum sínum.
- Að nemendur Húsabakkaskóla kynnist húsnæði og atburðum í nýja skólanum.
Næsta vika verður notuð til þessara heimsókna og verða þær sem hér segir:
18. apríl, kl. 9:30-11:00:
1. 2. og 3. bekkur Dalvíkurskóla heimsækja Húsabakkaskóla. Þá fara 4. 5. og 6. bekkur Húsabakkaskóla í heimsókn í Dalvíkurskóla.
19. apríl, kl. 9:30-11:00:
4. 5. og 6. bekkur Dalvíkurskóla heimsækja Húsabakkasóla. Þá fara 7. og 8. bekkur Húsabakkaskóla í Dalvíkurskóla.
20. apríl, kl. 9:30-11:00:
7. og 8. bekkur Dalvíkurskóla heimsækja Húsabakkaskóla. Þá fara 1. - 2. bekkur Húsabakkaskóla í heimsókn í Dalvíkurskóla.
Tónleikar og fræðsla:
Tónleikarnir sem vera áttu á næsta föstudag í Dalvíkurkirkju falla niður af óviðráðanlegum orsökum.
Með kveðju
Ingileif