Hefur þú áhuga á sjávarútvegi ? Og hefur þú áhuga á fjölbreyttu og lifandi starfi?

Hefur þú áhuga á sjávarútvegi ? Og hefur þú áhuga á fjölbreyttu og lifandi starfi?

Hefur þú áhuga á sjávarútvegi ? Og hefur þú áhuga á fjölbreyttu og lifandi starfi?

Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar auglýsir tímabundið 100% starf hafnavarðar/ hafnsögumanns I vegna afleysinga, í allt að 3 mánuði, starf með bakvöktum. Leitað er að öflugum og jákvæðum einstaklingi í afar fjölbreytt og lifandi starf.

Næsti yfirmaður er Hafnastjóri. Viðkomandi þarf að geta hafi störf sem fyrst.

Starfssvið og helstu verkefni:

  • Dagleg umsjón, eftirlit og viðhald á hafnasvæðum.
  • Daglegt eftirlit með skipum, móttaka þeirra, leiðsögn, skráning og afgreiðsla.
  • Vigtun afla.
  • Skráning og skil upplýsinga til reikningagerðar samkvæmt gjaldskrá.
  • Öryggis- og umhverfismál.
  • Almenn viðhaldsverkefni og þrif.
  • Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af næsta yfirmanni hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og þekking af sambærilegum verkefnum er kostur.
  • 30 tonna skipstjórnarréttindi (smáskipanámskeið) og hafnsöguréttindi eru kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði.
  • Góð þekking og reynsla af Outlook, Excel og Word er skilyrði.
  • Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti.
  • Iðnmenntun kostur.
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Rík þjónustulund og jákvæðni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skipulagshæfni og nákvæmni.
  • Gilt ökuskírteini.

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst.

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Með umsókn þarf að fylgja ítarleg ferilskrá auk staðfestra afrita af prófskírteinum, sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Nánari upplýsingar veitir:

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri, Netfang: eis@dalvikurbyggd.is.

Sótt er um hér

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.