Frá íþrótta,- æskulýðs- og menningarráði Dalvíkurbyggðar:
Auglýsing varðandi listasel
Íþrótta-, æskulýðs- og menningarráð hefur að undanförnu haft til umfjöllunar á fundum sínum þá hugmynd að sett verði á laggirnar listasel í Sigtúni, Grundargötu 1 á Dalvík.
Samhliða hugmynd um listasel hefur verið til skoðunar að neðri hæðin, Siggabúð, verði mögulega nýtt sem handverksverslun og upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn.
Til þess að kanna áhuga, þörf og mögulega þátttöku í slíku listaseli óskar íþrótta-, æskulýðs- og menningarráð Dalvíkurbyggðar hér með eftir að handverks- og listafólk í Dalvíkurbyggð sem hefðu áhuga á að fá inni í Sigtúni hafi samband við upplýsingafulltrúa Dalvíkurbyggðar, Margréti Víkingsdóttur, í síma 460-4908 eða með tölvupósti margretv@dalvik.is í síðasta lagi föstudaginn 22. október n.k.
F.h. íþrótta-, æskulýðs- og menningarráðs Dalvíkurbyggðar
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Fjármála- og stjórnsýslustjóri.