Búið er að fella trén þrjú sem verða síðan sett upp aftur og skreytt í þremur byggðakjörnum sveitarfélagsins.
Trén koma frá íbúum á Klængshóli, Bjarkarbraut 3 og Staðarhóli og eiga þeir miklar þakkir skilið fyrir.
Starfsmenn Dalverks ehf., þeir Jón og Sigurgeir, aðstoðuðu Kristján Guðmundsson, starfsmann eigna- og framkvæmdadeildar Dalvíkurbyggðar, með kranabílum við niðurfellinguna á tveimur stöðum, bæði vegna stærðar trjánna og aðgengis.
Aðgerðirnar gengur hratt og vel fyrir sig og íbúar Dalvíkurbyggðar fá í staðinn falleg skreytt jólatré sem verður hægt að njóta á aðventunni.
![](/static/files/Adalvefur/Myndir/Vidburdir/Jolatre/75369123_571475283656055_1746281157923700736_n.jpg)
![](/static/files/Adalvefur/Myndir/Vidburdir/Jolatre/75388259_553594521869482_5090167829290811392_n.jpg)
![](/static/files/Adalvefur/Myndir/Vidburdir/Jolatre/78246483_1017390748606258_8942999509529526272_n.jpg)
![](/static/files/Adalvefur/Myndir/Vidburdir/Jolatre/76615079_429154054442374_443528379166097408_n.jpg)
![](/static/files/Adalvefur/Myndir/Vidburdir/Jolatre/draft.jpg)