Miðvikudaginn 20.nóvember verður kynningarfundur um fótboltann í Dalvíkurbyggð fyrir foreldra erlendra barna í byggðarlaginu.
Fundurinn verður í Dalvíkurskóla og hefst kl. 17:00.
Markmið með fundinum er að kynna fyrir foreldrum hvað felst í því að vera iðkandi í fótboltanum og hvað felst í því að vera foreldri fótboltabarna í Dalvíkurbyggð. Farið er yfir skráningarferlið í ÆskuRækt, heimasíðuna, sjálfboðaliðastarf í fjáröflunum, þátttöku í mótum, búningamál o.fl.
Fundurinn fer fram á íslensku og er þýddur á ensku og pólsku og verður kynningarefni á þessum tungumálum dreift á fundinum. Veitt verður aðstoð við skráningar barna og boðið verður upp á barnagæslu á meðan á fundi stendur.
Barna- og unglingaráð fékk styrk úr Landsmótssjóði UMSE 2009 til að standa straum að kostnaði vegna þessa fundar, þýðingum og túlkaþjónustu.
www.dalviksport.is