Frestun á opnun í Sundlaug Dalvíkur

Opnun á sundlauginni hefur verið frestað til mánudagsins 21. júní. Fyrst um sinn verður að ganga inn um gamla inngang og á neðri hæð og síðan beint inn í búningsklefa á efri hæð. Reiknað er með að opna nýja innganginn seinni part vikunnar. Ræktin verður lokuð enn um sinn. Ekki verður tekið gjald fyrir afnot af sundlaug í næstu viku.
Við biðjum gesti að sýna okkur þolinmæði meðan á framkvæmdum stendur og fylgjast með fréttum á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.