Fræðslu- og kynningarfundur fyrir foreldra barna með fatlanir og alvarlegar þroska- og hegðunarraskanir.
Félags- og skólaþjónusta ÚtEyjar í samvinnu við fjölskyldudeild Akureyrarbæjar boðar til fundar þriðjudaginn 31. janúar í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 20:30 fyrir foreldra barna með fatlanir og alvarlegar þroska- og hegðunarraskanir.
Á fundinum munu starfsmenn félags- og skólaþjónustu og starfsmenn frá fjölskyldudeild Akureyrarbæjar kynna samstarf á milli þjónustustofnanna og fara yfir réttindamál foreldra og barna. Þá verða reifaðar hugmyndir um áframhaldandi samvinnu í foreldrahópnum, kynnt hugsanleg námskeið o.fl. Einnig kemur á fundinn fulltrúi frá Þroskahjálp á Akureyri sem kynnir starfsemi þeirra.
Með kveðju og ósk um að sjá ykkur sem flest,
F.h. Félags- og skólaþjónustu ÚtEyjar
Eyrún Rafnsdóttir, þroskaþjálfi
Félagsmálastjóri Dalvikurbyggðar og Ólafsfjarðar.