Frábær árangur á Unglingameistarmóti Íslands á skíðum

Frábær árangur á Unglingameistarmóti Íslands á skíðum

Skíðafélag Dalvíkur sendi öfluga sveit ungmenna á aldrinum 12-15 ára á Unglingameistaramót Íslands á skíðum sem haldið var í Bláfjöllum daganna 27.-30. mars síðastliðinn.

Í tilkynningu frá Skíðafélaginu kemur fram að aðstæður í Bláfjöllum hafi verið hinar bestu, bæði hvað varðar snjóalög og veðurfar. Reynar þurfti að breyta dagskrá á sunnudag vegna snjóa en þá var keppt í flokkasvigi sem annars var planlagt á mánudegi. Óhætt er að segja að okkar fólk hafi staðið sig vel á mótinu, en hópurinn landaði 10 íslandsmeistaratitlum af 25 sem í boði voru. Að auki komu þau með 11 silfur og 4 brosverðlaun. 

Árangur okkar fólks var eftirfarandi:


Svig drengir 12 ára
1. Guðni Berg Einarsson
2. Daði Hrannar Jónsson
6. Birgir Ingvason
9. Daníel Máni Hjaltason

Stórsvig drengir 12 ára
1. Guðni Berg Einarsson
2. Birgir Ingvason
3. Daði Hrannar Jónsson
10. Daníel Máni Hjaltason

Svig stúlkur 12 ára
2. Herborg Helena Harðardóttir
4. Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir
8. Valgerður María Júlíusdóttir
15. Kristrún Lilja Sveinsdóttir

Stórsvig stúlkur 12 ára
4. Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir
8. Valgerður María Júlíusdóttir
15. Herborg Helena Harðardóttir
17. Kristrún Lilja Sveinsdóttir

Svig drengir 13 ára
1. Helgi Halldórsson

Stórsvig drengir 13 ára
1. Helgi Halldórsson

Svig stúlkur 13 ára
2. Guðfinna Eir Þorleifsdóttir

Stórsvig stúlkur 13 ára
1. Guðfinna Eir Þorleifsdóttir

Svig drengir 14 ára
2. Axel Reyr Rúnarsson

Stórsvig drengir 14 ára
2. Axel Reyr Rúnarsson

Svig stúlkur 14 ára
2. Bríet brá Bjarnadóttir
15. Ásrún Jana Ásgeirsdóttir
18. Kolbrún Sonja Rúnarsdóttir

Stórsvig stúlkur 14 ára
2-3. Bríet Brá Bjarnadóttir
13. Ásrún Jana Ásgeirsdóttir
20. Kolbrún Sonja Rúnarsdóttir

Svig drengir 15 ára
3. Jökull Þorri Helgason

Stórsvig drengir 15 ára
2. Jökull Þorri Helgason

Alpatvíkeppni

12 ára stúlkur
3. Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir

12 ára drengir
1. Guðni Berg Einarsson
2. Daði Hrannar Jónsson

13 ára stúlkur
1. Guðfinna Eir Þorleifsdóttir

13 ára drengir
1. Helgi Halldórsson

14 ára stúlkur
1. Bríet Brá Bjarnadóttir

14 ára drengir
1. Axel Reyr Rúnarsson

15 ára drengir
2. Jökull Þorri Helgason

Flokkasvig. (Sveitakeppni(6), blandað lið í kyni, aldri og félög)
2. Helgi Halldórsson
3. Axel Reyr Rúnarsson.