Frá Menningarsjóði Svarfdæla
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði Svarfdæla. Samkvæmt 2. grein skipulagsskrár sjóðsins er tilgangur hans að veita styrki til hvers konar menningarmála á starfssvæði Sparisjóðs Svarfdæla, en það er Dalvíkurbyggð og Hrísey.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. mars 2006 til stjórnarformanns,
Dóróþeu Reimarsdóttur
Steintúni 3
620 Dalvík
(netfang: dorotea@simnet.is).
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Sparisjóðsins og hjá stjórnarformanni.
Styrkþegar síðasta árs eru minntir á að skila inn greinargerð um nýtingu úthlutaðra styrkja fyrir sama tíma.
Stjórn Menningarsjóðs Svarfdæla.