Forsetakosningar í Dalvíkurbyggð 1. júní 2024

Forsetakosningar í Dalvíkurbyggð 1. júní 2024

Kjörskrá vegna Forsetakosninga 1. júní n.k. liggur frammi almenningi til sýnis frá 13. maí fram á kjördag í þjónustuveri Skrifstofa Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00 nema á föstudögum frá kl. 10:00 – 12:00.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.

Viðmiðunardagur kjörskrár er 24. apríl kl. 12:00, en við þann dag er miðað hvar kjósendur eru skráðir á kjörskrá.
Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá;

https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/forsetakosningar/

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands.
Kjósendum er einnig bent vefinn https://island.is/v/forsetakosningar-2024 þar sem er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.

Sveitarstjórinn í Dalvíkurbyggð,

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir